Færslur: 2007 Desember

21.12.2007 20:46

Jólin eru að koma, í kvöld, jólin eru að koma ...

Já komiði sæl og blessuð, ég lofaði víst bloggi fyrir jólin og ég ætla að standa við það.
Á morgun er ég á leiðinni austur á seyðisfjörð og þá hefst loksins þetta langþráða jólafrí sem ég hef beðið eftir síðan ég kom úr sumarfríinu mínu.  Alltaf gott að fá nokkra daga í frí frá vinnunni og líka bara hollt fyrir geðheilsuna og svona að komast frá þessu tíbíska umhverfi sem maður er í 365 daga á ári.  Þið skiljið hvað ég meina.  Stór vika framundan hjá öllum fótboltaunnendum því það eru 3 umferðir í ensku fram að áramótum og að ég tala ekki um stórleik helgarinnar þegar Barcelona keppa við Real Madrid..... þetta verður snilld þessi slagur því ég er að vonast eftir því að Eiður fái að spila þennan leik svo maður sjái hvað hann virkilega getur, það eru allir að tala um það þessa dagana að hann er í toppformi og er að leika vel, sögusagnir á kreiki að hann muni vera tekinn framfyrir menn eins og Deco, Ronaldinho og Henry þannig að eins gott fyrir hann að standa sig ef þetta verður veruleikinn.  Verður fróðlegt að sjá hann á sunnudaginn kl 18:00.
Við strákarnir ætlum að hafa pokerkvöld 28. Des og get ég ekki beðið eftir því, frekar langt síðan það var síðast og verð ég að fara að vinna einhvern pening núna því ég er búinn að vera ansi óheppinn undanfarinn pokerkvöld.  Hópurinn sem ég spila poker með eru Jón, Gauji, Kiddi, Gúdzjó og síðastur og alls ekki síðstur Sigfús Gauti.  Hann er einmitt þessi heppna týpa sem vinnur ansi mikinn pening á þessum kvöldum og fer það frekar mikið í pirrurnar á mér, ekkert illa meint Skauti minn, þetta fer að snúast við....   

Lengra verður það ekki að sinni, 
Hafi það öll rosalega gott um jólin.

Gleðileg jól allir saman
Gunz Out. 

12.12.2007 17:53

Lélegasti bloggari norðan alpanna !!

Góðan daginn
Þar sem ég fékk þessa skemmtilegu setningu í hausinn í dag um að ég væri lélegur bloggari ákvað ég að setja inn smá færslu hérna til þess að bæta mig aðeins og svo lofa ég því að ég mun standa mig betur hér eftir.

Það er svo sem ekkert merkilegt að frétta af mér þar sem ég á mér ekkert líf þessa daganna.  Konan er í miðri próftörn og ég ligg annaðhvort inn í herbergi að horfa á sjónvarpið eða frammi ef Stella sé inn í herberginu að læra....  EKKERT LÍF þarna á ferð.  Margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, kannski ekkert skrítið því það eru 2 mánuðir síðan ég bloggaði síðast.  Árshátíðin gekk vel, myndbandið góða sló í gegn og Gunz var blindfullur þarna og man ekkert eftir þessu kvöldi eftir að myndbandið var sýnt.....   Síðan þá hefur mikið verið talað um að koma með þriðja myndbandið en ég er ekki viss um að það gerist því þetta tekur svakalegan tíma að gera eitt stykki myndband, sem btw var 34 mínútur að lengd... kannski í það lengsta en maður gat ekki tekið eitthvað úr því og ekki sýnt, þetta varð allt að komast til skila.  Kemur í ljós á næsta ári hvað verður gert.....

Jólahlaðborðið var síðan 1 Des og það var snilld, það var haldið í glersalnum í kópavogi og maturinn þar var hreint út sagt snilld, hef sjaldan smakkað jafn góðan mat á ævi minni og hef ég lifað þau nokkur   Enduðum síðan á Players á balli með Vinum vors og blóma... hrikalega gaman og allir blindfullir og hauslausir eins og vanalega...
Jólin nálgast og ég er búinn að panta flugfar austur á seyðisfjörð því þar verð ég um jólin.  Kem aftur 27 des og eyði áramótunum líklega hjá Mömmu og Pabba, eins og í fyrra og vona ég bara að ég verði ekki jafn edrú og síðast, Pabbi, ég treysti á þig að þú verðir með eitthvað áfengt á boðstólnum.

Fleira ætla ég ekki að segja að þessu sinni, lofa að blogga aftur fyrir Jólin.... segi samt ekki hvaða ár

Gunz out
  • 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 32746
Samtals gestir: 13630
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:48:51

Um mig

Nafn:

Gunni Gunn

Afmælisdagur:

23. Júlí

Heimilisfang:

Mosfellsbær

Staðsetning:

Ísland

Tenglar